Fara í vöruupplýsingar
Pallíettu Buxur Midnight Blue + Straumur Skyrta
33,800 kr
Nældu þér í allt outfittið hér!
Straumur Skyrta Svört Satín
Skyrtan er styttri að framan með 2 löngum böndum sem víxlast í kross & hnýtast svo utan um mittið.
V-hálsmál að framan & stórar Bell ermar sem eru teknar saman við úlnlið & svo er líning framan á ermunum.
Skyrtan er síðari að aftan en það er svolítið hægt að ráða hvernig hún er þar sem efnið er létt & ekkert mál að stjórna síddinni að aftan.
Pallíettu Buxur Midnight Blue
Virkilega klæðilegar buxur sem eru alveg beinar frá mjöðmum & niður í fald.
Buxurnar eru saumaðar úr einstaklega fallegu plíseruðu pallíettuefni sem er aðeins gegnsætt í grunninn & mælum við því með að nota aðra flík innanundir, t.d. sokkabuxur eða leggings.
Klofsídd / skrefasídd er 77-80 cm