Minn aðgangur

Innskráning

Nýskráning

Netpantanir

Öllum sendingum er pakkað næsta virka dag eftir að pöntun berst.
Stundum er hluti pöntunar í verslun okkar á Akureyri & þá getur það tekið lengri tíma, en þá er sendur tölvupóstur á viðskiptavin þar sem er látið vita af seinkun.
Við sendum út sendingar alla virka daga, bæði með póstinum & TVG & sendingar geta tekið 1-3 virka daga að skila sér til viðtakenda.
Ef að varan er ekki til, þá gæti verið að hún sé í saum, og það getur tafið sendinguna, en þá er sendur tölvupóstur á viðskiptavin til þess að upplýsa um mögulega seinkun eða endurgreiðslu ef varan er ófáanleg.
Við reynum alltaf okkar allra besta í að afhenda vöruna eins og fljótt og hægt er.
Viðskiptavinur fær alltaf tölvupóst um stöðu pöntunar & afhendingarferli hennar.

Vöruskil
Skilaréttur Netverslun
Áður en pöntun fer í póst getur kaupandi hætt við með því að senda tölvupóst á netfangið: baraatla@gmail.com
Skilaréttur gildir 14 daga frá því pöntunin er komin á valdan afhendingarstað.
Til að geta skilað vöru þarf hún að vera:
Í upprunalegu ásigkomulagi
Ónotuð
Með framleiðslu- eða verðmiða.
Að vara sé ekki sérpöntun eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar
Ekki er hægt að skila nærfatnaði.
Val er um að fá inneign eða endurgreitt þegar vöru er skilað, pantanir greiddar með inneign eru ekki endurgreiddar.

Hægt er að skila með því að senda vöruna eða koma með hana í verslun Brá í Mörkina 1, 108 Reykjavík eða á Dalsbraut 1, 600 Akureyri
Endursendingarmiði og nákvæmar leiðbeiningar skulu fylgja öllum pöntunum.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur
Heimilt er að skila vörum innan 14 daga frá móttöku vöru. Staðfesta þarf vörukaup með því að sýna kassakvittun eða reikning. Kaupandi ber ábyrgð á ástandi vöru við vöruskil. Skilaréttur er að öðru leyti skv. lögum um neytendakaup hverju sinni. Ekki er hægt að skila vörum sem eru sérpantaðar. . Hægt er hægt að hafa samband við Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvth.is. um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi. Einnig er að finna í viðauka 1 í reglugerð nr. 435/2016, samræmt staðlað uppsagnareyðublað. https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/435-2016

Skilaréttur í verslun Brá Verslun, Mörkinni 1 & Dalsbraut 1
Skila skal vöru innan 14 daga frá kaupum ásamt kassakvittun eða sýna staðfestingarpóst þegar vörunni er skilað.
Til þess að getað skilað vörunni þarf hún að vera:
Í upprunalegu ásigkomulagi
Ónotuð
Með framleiðslu- eða verðmiða.
Aðeins er hægt að skipta í aðra vöru, fá inneign eða gjafabréf.
Ekki er hægt að skila nærfatnaði.
Útsölu- og tilboðsvörur
14 daga skilaréttur er á útsöluvöru sem keypt er í netverslun. Verðið á vörunni miðast við daginn sem henni er skilað.
Gjafir & Gjafakort
Ef vara er merkt sem gjöf og send beint til viðkomandi sem skilar vörunni fær viðkomandi inneignarnótu að andvirði vörunnar á þeim tíma sem henni er skilað.
Gjafakorti er ekki hægt að skila og ekki er hægt að leysa innstæðu þess út fyrir reiðufé.
Galli
Ef kaupandi kaupir gallaða vöru skal senda tilkynningu með mynd um leið og galli kemur fram í vöru á netfangið: baraatla@gmail.com
Einnig er hægt að koma með vöruna í verslunina til okkar þar sem boðið er uppá viðgerð, hægt að fá endurgreitt, skipta í aðra vöru eða fá inneignarnótu.
Það fer eftir því hvernig galla er um að ræða hvaða aðgerð kaupandanum er boðið uppá.
Um rétt kaupenda vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru & þjónustukaupa http://www.kvth.is sem staðsett er í Borgartúni 29

Endurgreiðsla
Endurgreiðsla fer fram eftir að starfsmaður netverslunar okkar hefur móttekið vöruna frá kaupanda. Þegar vara hefur verið móttekin og hún verið skoðuð er kaupanda sendur tölvupóstur þar sem viðkomanda er tilkynnt að varan sé móttekin.
Ef að endurgreiðslan er samþykkt fer hún fram eins og upprunalega var greitt fyrir vöruna, er greiðsla felld niður á kort, netgíró, pei eða millifært inná kaupanda. Endurgreiðslan skal berast kaupanda innan nokkurra daga.
Ef kaupandi hefur ekki fengið endurgreiðslu innan 10 daga frá staðfestingarpósti um samþykki endurgreiðslu frá skal viðkomandi hafa samband við vefverslunina á netfangið: baraatla@gmail.com